Við áttuðum okkur á því að við höfum ekki borðað 3 saman kvöldmat hér á Heather Close síðan á Skírdag. Inga Huld varð eftir á Íslandi, síðan kom Ingó með hana á föstudaginn og var hjá okkur framá mánudag og ég var í Lissabon í gær ...
Inga Huld var bara ánægð með Íslandsdvölina en hafði þó orð á því við ömmu sína að hún ætlaði nú ekki aftur að dvelja svona heima á Íslandi án mömmu og pabba! ... allavega ekki svona lengi ... Um helgina með Ingó var nú ýmislegt brallað, fórum og dressuðum drenginn upp, keyptum gasgrill svo það væri hægt að grilla fyrir hann nautasteik, fórum í Madam Tussaud, horfðum á Valiant í bíói á Leicester Square og borðuðum á Rainforest Cafe ... allt saman alveg meiriháttar og Inga Huld spurði í sífellu hvað væri næst á dagskránni !! Það var líka dáldið sniðugt að kaupa gasgrillið með Ingó hérna þar sem hann var að sjálfsögðu settur í samsetningardeildina á meðan ég þurfti að "redda" gasinu ... spurning samt hvort samsetningin hafi verið rétt gerð þar sem það stóðu eftir nokkrar skrúfur og skífur ... en allavega stendur grillið og það grillaði nautasteikina bara mjög vel.
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli