Bifreiðin okkar var farin að gefa frá sér óeðlilega mikið hljóð undanfarnar vikur. Jóu fannst þetta bagalegt og hálfskammaðist sín um að keyra um á þessum hávaðasegg en mér fannst dáldið skemmtilegt að gefa vel inn og heyra dáldið gott "sánd" í bílnum !! Þegar fólk var þó farið að líta óeðlilega mikið á bílinn þegar keyrt var um bæinn þá var nú ákveðið að gera eitthvað í málinu. Okkar bifreiðatækniþekking benti til þess að líklega væri eitthvað að pústinu ... því var haldið á KwikFit sem gerir við dekk, bremsur, dempara og púst. Ég og Inga Huld tókum þetta mikilvæga verkefni að okkur á sunnudagsmorguninn kl. rétt rúmlega tíu. Þegar við mættum á svæðið þá voru að sjálfsögðu þrír á undan okkur (tímanlegur bretinn ...) ... maðurinn var nú ekki lengi að finna út úr vandamálum okkar, vippaði bílnum uppá bílalyftu, fletti uppá runópúströrum í einhverjum bæklingi, fór bakatil og kom til baka með "front cylender" og sýndi mér hvað þyrfti að skipta um undir bílnum og hvernig þetta myndi allt saman passa og að lokum gaf hann mér kvót sem hljóðaði uppá 79.90 pund. Leist mér vel á það á sömdum við um verð, verk og efni á stundinni og var þessu öllu lokið eftir stuttar (langar segir Inga) 20 mínútur! Heim var svo haldið á hljóðlausum bíl.
Allt hljómaði þetta nú mjög vel þangað til Jóa sendi mig í bíltúr í kvöld til að upplýsa mig um ýmis skringileg hljóð í bílnum ... nú heyrist smellur í pústinu þegar startað er og það glamrar vinstra megin í bílnum þegar teknar eru hægri beygjur, sérstaklega þegar hægri beygjan er tekin á dáldilli ferð og enn meira ef farið er yfir hraðahindrun í leiðinni ... einnig skröltir ýmislegt þegar bakkað er. Ég ráðlagði Jóu að keyra hægt og rólega og helst ekki bakka þar til við gætum skellt bílnum aftur til KwikFit til að láta athuga dæmið ... allavega fylgir 2 ára ábyrgð á púströraverkinu þeirra þannig að það hlýtur enn að vera í gildi!!
Annars er skemmtileg ásökun á hendur breskum stjórnvöldum nýkomin fram - það er semsagt móðir systra sem eru 12, 14 og 16 ára sem hefur komið þessari ásökun á framfæri vegna ónógrar "sex" fræðslu í skólastofnunum hér á landi ... og ástæðan ?? jújú, allar dætur hennar hafa orðið óléttar og eignast börn !! Það er nú hægt að kenna ríkinu um ýmislegt og ætlast til að það geri hittogþetta ...
með kveðju frá London
Engin ummæli:
Skrifa ummæli