Það var rigning hér þegar við vöknuðum í morgun og hefur það ekki gerst svo vikum skiptir ... í raun alveg kominn tími á smá bleytu. Þetta var líka ágætisafsökun að sofa aðeins lengur á meðan Inga Huld horfði á barnaefnið þar sem ekki var vinnufært úti í garði. Einnig tókum við okkur til og skipulögðum Ljubljanaferðina okkar sem hefst næstkomandi föstudag - á dagskrá eru gönguferðir, bátsferðir, kastalaferðir, hjólaferðir, barferðir, kaffihúsaferðir og útaðborðaferðir - sem sagt nóg um að vera. Túristahandbókin segir okkur að veitingahús í Ljubljana séu þau dýrustu í Slóveníu og kostar máltíð með víni frá 2500 sit og dýrasta sem finnst er á 4000 sit og eitthvað upp úr því ... til að koma þessu í eitthvað samhangi þá er 1 pund um það bil 340 sit sem gerir dýra máltíð á rúmlega 11 pund sem eru ca 1300 íslenskar krónur ... furðulegt verðlag sem sagt ...
Til að gera eitthvað í dag þá fengum við okkur bíltúr til Crystal Palace sem er kjarni ekki svo langt frá okkur. Nafnið á þessum bæ er ekki útí loftið heldur var þarna áður fyrr stærðarinnar glerhýsi sem var fyst reist í Hyde Park vegna heimssýningarinnar árið 1851 en síðan flutt til Crystal Palace og tók bærinn nafnið eftir byggingunni. Glerhýsið brann síðan 1936 (skildum ekki alveg hvernig glerhýsið brann ...) og skoðuðum við því eftirstandandi rústir og safn um þetta ... mjög áhugavert. Enduðum daginn síðan á því að gróðursetja 15 plöntur þar sem veðrið var orðið skárra seinnipartinn ... létti til og var þægilegur 20 stiga hiti ... eru þá allar plönturnar komnar niður en eftir á að gera tröppur á milli hæða. Efnið í tröppurnar er tilbúið og á bara eftir að hanna þær og smíða ... vonandi náum við því fljótlega þar sem von er á gestum á miðvikudaginn sem Inga Huld er búin að telja dagana niður í og er mjög spennt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli