mánudagur, janúar 30, 2006

Fórum í göngutúr í gær í Greenwich Park, eða sem sagt ég og Jóa gengum á meðan Inga Huld hjólaði. Þurfti að taka hjólið í gegn og hækka hnakkinn og þvíumslíkt - greinilegt að sumir eru að stækka. Okkur finnst síðan best að hjóla bara beint áfram og er hún þess vegna alltaf langt langt á undan okkur nema að við sprettum úr spori - æfing dagsins var því að hjóla í hringi, snúa við og beygja og svoleiðis ... gekk það bara nokkuð vel.

Annars er jukkan okkar hálfdöpur þessa dagana - virðist þetta hafa byrjað áður en jólatréinu var fleygt úr stofunni þannig að ekki virðist hún sakna jólatrésins. Kannski er það frekar sú staðreynd að hún var flutt útí hornið á stofunni og fékk ekki eins mikla athygli og jólatréið sem olli því að hún varð niðurdregin. Enn ein skýringin er sú að jólatréið hafi reynt að drepa jukkuna ... ekki veit ég hvaða aðferðum jólatréið beitir til þess en sumir hafa þessar kenningar. Við vonum að hún hressist við núna með því að hún er vökvuð sérstaklega vel og alltaf nægri athygli beint að henni ...

cheers

Engin ummæli: