Í gær fórum við Inga Huld í bæinn að dunda okkur - byrjuðum á því að kíkja hvort eitthvað væri í bíó á Leicester square en fundum ekkert spennandi. Röltum því í bókabúð á Oxford Street og keyptum þar Narnia bók fyrir Ingu Huld - í HMV gátum við síðan keypt okkur geisladiska, keyptum meðal annars disk með Emilíönu Torrini sem verður spennandi að heyra í. Við fórum í fyrsta skipi í Apple búðina á Regent Street og þvílík búð !! Ingu Huld fannst feikigaman á efri hæðinni þar sem voru nokkrar tölvur með krakkaforritum og hún dundaði sér heillengi þar á meðan ég fann mér hulstur utan um nýja ipoddinn minn. Við fengum okkur svo hamborgara og kjúklinga fingra með "smælí feis" kartöflum á TGI Fridays á leiðinni heim en gátum ekki yfirgefið Leicester square þó á heimleiðinni án þess að fá okkur smávegis Haagen Daz í desert ... nammi namm !!
Núna í dag vorum við svo aftur saman og held ég að Ingu Huld langi þó bara að fara að byrja aftur í skólanum. Hún var þó hörkuduleg á scooternum sínum og æfði sig að ýta sér áfram og láta sig svo renna bara. Við reyndum líka að láta gera við útvarpið í bílnum en einsog áður hefur komið fram þá er það læst þar sem þurfti eitthvað pin númer á það. Ég fann hér nálægt búð sem virðist gera ýmislegt í bílarafmagni og spurði hvort hann gæti hjálpað mér - hann sagðist geta reddað málunum og "decodað" útvarpið fyrir mig fyrir "twenty quitt" - ég samþykkti það og tók hann þá útvarpið úr bílnum og ég má sækja það á morgun ... ég er mikið að spá í því hvort ég eigi nokkurn tímann eftir að sjá þetta útvarp aftur.
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli