Þetta var hálfgerð letihelgi hjá okkur núna, allavega hjá mér og Ingu Huld þar sem Jóa þurfti að læra og vinna í hópverkefnum. Í gær fórum við í Madison Square Park á scooternum og Inga Huld lék sér í leiktækjunum heillengi áður en við hittum Jóu á Union Square og versluðum í matinn. Ég eldaði nautafillet í kvöldmatinn sem við keyptum hjá butchernum á 2nd avenue milli 22nd og 23rd street - höfðum við ekki verslað við hann áður en nokkrum sinnum kíkt á úrvalið í borðinu.
Í dag var svo enn meira letilíf ... bókalestur og sjónvarpsgláp. Dröttuðumst út um kaffileytið og röltum þá uppá Times Square þar sem stefnan var sett á Toys´r us ... Inga Huld er nefnilega að fara í afmæli hjá Rosie á miðvikudaginn eftir skóla. Var nú hægt að eyða smá tíma í dótabúðinni að skoða og spuglera ... t.d. var komið dáldið af nýju playmoi og nóg var úrvalið af Barbie ... Inga Huld er nefnilega byrjuð að plana jólagjafalistann og er líklega af nógu að taka þar sem hún sér oft og iðulega eitthvað í auglýsingatímanum á teiknimyndastöðunum sem henni langar í. Það er þó merkilegt að á einni stöðinni, líklega Disney stöðinni, þar eru oft bílatryggingaauglýsingar og Inga Huld er orðin ansi þreytt á þeim gæja og dæsir og stynur hvað í óskpöpunum hann sé að gera þarna að trufla það sem hún sé að horfa á ... í raun og veru er ég alveg sammála henni, er ekki alveg að ná markhópnum hjá fyrirtækinu. Sé kannski tvo hópa - annar er heimavinnandi húsmæður (-feður) sem sitja yfir skjánum með börnunum og hinn er sá að þeir reyna að sannfæra kaupandann snemma að kaupa sínar vörur ... sú tækni virðist þó fara öfugt í dóttur okkar þar sem ekki er séns á því að hún eigi eftir að skipta við þetta bílatryggingafyrirtæki. Allavega fengum við okkur síðan snemmbúinn kvöldmat á "Olive Garden" sem er á Times Square - er sá staður allt í lagi í hallæri en ekkert sérstaklega spes.
cheers
1 ummæli:
Þeir hafa kannski heyrt um barnið sem keypti sér bíl á netinu og eru að reyna að ná betur til barnanna með tryggjangarnar.
Bíllinn verður jú að vera trygður.
http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1225460
kv. ingo
Skrifa ummæli