laugardagur, maí 26, 2007

Tao

Tao er asískur fusion staður, staðsettur á 58nda stræti á milli Madison og Park, í anda Nobu og gefur ekkert eftir. Við bókuðum borð með mánaðarfyrirvara til að fara með ömmu og afa út að borða áður en haldið væri á balletsýningu í The Met. Allt sem við fengum okkur bragðaðist vel og ég held bara að ekkert hafi valdið vonbrigðum. Við deildum með okkur vorrúllum með Peking önd, Chicken Satay og risa tempura rækjum í forrétt. Í aðalrétt mælti þjónninn með að við myndum panta okkur rétti fyrir hvert okkar en ekki deila þeim einsog við erum vön á þessum stöðum. Allir réttirnir eru þó þannig settir upp að það er alveg hægt að borða þá saman sem okkur finnst yfirleitt skemmtilegra með þennan mat þar sem það er þá hægt að prófa meira. Ég mæli sérstaklega með túnfiskinum ... matseðillinn sagði að það ætti að vera hvítur túnfiskur sem mig langaði dáldið til að smakka en þar sem kokkinum fannst hann ekki nógu ferskur og góður á markaðnum í morgun þá var boðið uppá Yellowtail ... mjög gott! Við héldum okkur við sjávarréttina, Miso gljáður Sea Bass frá Chile bráðnaði í munninum og Hong Kong XO rækjurnar voru meiriháttar. Enginn prófaði steikina en meðal annars var boðið uppá Kobe beef sem ég efa ekki að er gott hjá þeim. Það er nauðsynlegt að sleppa ekki desert hér en það er alveg í lagi að deila þeim þar sem stærðin dugar auðveldlega fyrir tvo og mun ekki verða deilt um þá þrátt fyrir að þeim sé deilt. Ég held ég verði bara að gefa þessum stað 5 stjörnur ... ég get ómögulega fundið eitthvað neikvætt.

Engin ummæli: