mánudagur, júlí 09, 2007

Í morgun lauk dvöl okkar í fjallasælunni í Mont Tremblant og haldið var til Quebec með stoppi í Montreal. Við brölluðum ýmislegt í fjöllunum t.d. fórum við í river rafting þar sem við fórum í family rafting 7km niður River Rouge - Ingu Huld fannst það meiriháttar og fékk hún að sitja fremst í bátnum þannig að það gusaðist mest yfir hana þegar við fórum niður flúðirnar ... síðan syntum við í ánni, hentum okkur í strauminn og fengum að hoppa ofan af kletti og útí ... mikið fjör og vorum við lúin eftir róðurinn.

Við fórum einnig í 30km hjólatúr sem tók okkur hálfan dag ásamt nestisstoppi en þar sem við þurftum einnig að hvíla okkur og slappa af þá vorum við líka dugleg að hanga í sundlauginni, sóla okkur og rölta um fjallaþorpið. Óvænt var einnig byrjunin á 9 daga International Blues Festival og var af því tilefni búið að setja upp slatta af sviðum víðs vegar um þorpið ... okkur gafst þar tækifæri til að hlusta á ýmsa blúsara eins og Jimmy James, Mike Deway, Harry Manx og Janiva Magness ásamt fjölda annarra sem ég hef ekki hugmynd um hverjir eru.

Við stoppuðum aðeins nokkra klukkutíma í Montreal þar sem það rigndi mestallan tímann. Okkur gafst þó tækifæri til að kíkja á tvær stórar og fallegar kirkjur, fyrri kirkjan var St. Joseph´s Oratory sem er að ég held stærsta kirkja sem ég hef séð og slær hún út bæði St. Pauls í London og Notre Dame í París, seinni kirkjan var Notre Dame Basilica sem var ólíkt þeirri fyrri öll skreytt innandyra í gulli og öðru fagurlegheitum.


Einnig kíktum við í jólavörubúð og fengum okkur crepes ásamt því að rölta eilítið um gamla bæinn áður en við brunuðum áfram á áfangastað.

Engin ummæli: