Skólinn hjá Jóu er að byrja en Inga Huld byrjar ekki fyrr en í næstu viku og hlakkar mikið til. Það hefur því verið feðginatími hjá mér og Ingu Huld ... í gær löguðum við til hjólið hennar sem hefur ekki verið notað lengi, hækkuðum hnakkinn og stýrið, pumpuðum í dekkin og þurrkuðum af því rykið ... svo fékk ég scooterinn hennar lánaðan og við skelltum okkur út. Það var dáldið erfitt að hjóla fyrst en svo kom þetta allt saman og var það svipuð saga hjá mér, dáldið erfitt að höndla þennan scooter til að byrja með svo að vel færi en svo var ég orðinn ansi lunkinn. Við höfðum ekkert takmark í sjálfu sér og áður en við vissum af þá vorum við komin niður að Williamsburg bridge ... þannig að þá var stefnan að sjálfsögðu sett á Manhattan bridge og þegar þangað var komið þá var náttúrulega ekkert annað en að fara að Brooklyn bridge. Það er einmitt góð leið til að muna í hvaða röð brýrnar koma að neðanfrá talið er það Brooklyn, Manhattan, Williamsburg sem sagt BMW ... en það er nú aukafróðleikur. Í dag kom ég svo heim eftir hádegi og þá var að sjálfsögðu farið í annan hjólatúr nema að núna var ég á hlaupaskónum ... kominn tími til að hreyfa sig aðeins núna eftir sumarið. Það er ansi langt síðan ég hef farið út að hlaupa og þá sérstaklega í 32ja stiga hita ... það kom þó svalandi vindur af East River þannig að þetta var ekki svo slæmt. Við stefndum aftur að Brooklyn Bridge og hvöttum hvort annað áfram ... Inga Huld vildi snúa við þegar við vorum hálfnuð og svo vildi ég snúa við þegar við vorum komin 3/4 leiðarinnar þannig að á endanum komumst við alla leiðina með reglulegum hvíldum og stoppum á leiðinni ... heimleiðin var í rauninni einhverra hluta vegna styttri þrátt fyrir að vera nákvæmlega sama leiðin. Þetta ferðalag tók okkur einn klukkutíma og fjörutíuogfimm mínútur sem er ekki svo slæmt miðað við að samtals voru þetta um 6.8 mílur eða rétt tæplega 11 kílómetrar ... ágætis æfing það fyrir bæði okkur.
fimmtudagur, ágúst 30, 2007
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli