sunnudagur, mars 30, 2008

Það er langt síðan við höfum verið barnlaus í nokkra daga og hvað gerir barnlaust fólk? Okkur datt í hug að nota tækifærið og skella okkur til Las Vegas og fórum því þangað í stutta helgarferð. Hótelið, Bellagio, bauð uppá allt sem hugurinn gat hugsanlega girnst og hefði því ekki þurft að yfirgefa það í nokkra daga áður en leiðinn sækti að. Veðrið var frábært, um 20-25 stiga hiti og þurrt loft ... gott að sitja því á sundlaugarbarnum og sötra hvítvín og kokteila á milli þess sem reynt var á heppnina í spilavítinu. Eini gallinn er að veitingastaðirnir þarna eru því miður ekki alveg nógu góðir og reyndum við þriggja stjörnu Michelin stað hans Joel Robuchon á MGM Grand en hann Joel á víst veitingastaði með flestar stjörnur í heiminum en hann olli vonbrigðum og var 6 rétta matseðillinn ekki alveg nógu vel heppnaður ... sem betur fer fórum við ekki í 15 rétta matseðilinn hans! Besta frá honum var kveðjugjöf sem var risastórt Panettone brauð sem við gæddum okkur á í morgunmat áður en við fórum í 40 mínútna þyrluferð til Grand Canyon þar sem hádegismatur vær snæddur í góðu yfirlæti og mjög svo mikilfenglegu umhverfi í miðju gljúfrinu við hlið Colorado árinnar. Annars nutum við bara lífsins í allsnægtum og höfðum það mjög gott ...

Við komumst allavega að því að við erum ekki heppin í spilum (eða rúllettu ...) þannig að við hljótum að vera heppin í ástum ...

Engin ummæli: