Inga Huld gerði alveg útaf við mig um helgina þar sem hún var svo viljug að fara út að hjóla og var ég hlaupandi á eftir ... hún hefur greinilega styrkst mikið frá því í fyrra og heldur því góðum meðalhraða núna. Við fórum bæði laugardag og sunnudag að Brooklyn Bridge. Veðrið er tekið að hlýna og er komið gott vorveður með um 15 stiga hita og heitara þegar sólin brýst fram. Nú líður að lokum vorannarinnar hjá Jóu og var hún því alla helgina í skólanum - ég og Inga Huld tókum svo ZipCar á laugardaginn og sóttum hana við mikinn fögnuð. Nú er ekkert sem stoppar grillmeistarann og voru grillaðar lambalærisneiðar töfraðar fram á sunnudagskvöldinu ...
1 ummæli:
Halló,, gaman að vita að allt gengur vel. Ánægð með ykkur að skella ykkur til Vegas, svona á að lifa.
kv.
Auður
Skrifa ummæli