Tengdó eru í heimsókn og við vorum að koma úr nokkurra daga ferðalagi. Við byrjuðum í síðustu viku í Old Greenwich sem er lítill bær við hliðina á Greenwich þar sem ég gat verið í vinnunni á daginn og liðið slappaði af á daginn í huggulegum bænum eða flatmagaði á ströndinni. Á föstudeginum keyrðum við síðan í norðurátt til New London og gistum þar eina nótt áður en við tókum ferjuna yfir til Orient Point á Long Island. Keyrðum á nokkrar vínekrur og fengum að skoða og smakka uppskeruna áður en við héldum til East Hampton þar sem við gistum eina nótt. Fellibylurinn Hanna gekk yfir með mikilli rigningu og einhverjum vindi og mátti sjá nokkrar trjágreinar á víð og dreif á sunnudeginum þegar við keyrðum um svæðið og voru brimbrettamenn mjög ánægðir með brimið hjá Montauk vitanum þar sem þeir voru í bunkum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli