Í dag snjóaði slatta - hann Herra Níels skemmti sér konunglega í glugganum við að selta snjókornin og stundum var hann alveg viss um að hann væri að ná einu og hoppar þá á gluggann. Eftir um 20 mínútur fór hann að fatta að þetta var ekki að ganga upp og fór og lagði sig enda dauðþreyttur!

Jóa kom með þá snilldarhugmynd að fara í Miðgarð og leika sér í snjónum. Það var mjög merkilegt að það var líklega um tvöfalt meiri snjór inni í garðinum en utan hans. Hitinn frá bílunum og byggingunum gerir hitastigið á götunum töluvert hærra þannig að snjórinn verður strax að leiðindaslabbi. Í garðinum var líklega um 10-15cm snjór sem er nú bara talsvert ... við skelltum upp Snæfinni snjókarli við miklar eftirtektir gangandi vegfarenda ... og sáum við svo fólk stilla sér upp með honum fyrir myndatökur þegar við vorum að fara.

Röltum síðan á Tavern on the Green og fengum okkur heitan drykk í kroppinn. Þaðan lá leiðin svo í lestina niður í Dean & Deluca til að versla ýmislegt góðgæti fyrir jólin ... hér er nú alveg hægt að missa sig.

Það lá þá náttúrulega beint fyrir að hafa jólahlaðborð heima með pate, síld, síldarsalati, graflaxi, reyktum laxi, kavíar, foie gras, ostum, rúgbrauði og flatkökum ásamt dönskum jólabjór og egils malt og appelsín ...

Engin ummæli:
Skrifa ummæli