mánudagur, mars 24, 2003

Það er sama veðurblíðan hér hjá tjöllunum - sumarið greinilega komið enda þurfti ég að draga fram sláttuvélina til að slá garðinn svo að við værum nú ekki til skammar hér í hverfinu !! Inga Huld er að horfa núna á Ávaxtakörfuna í hundraðasta skiptið - virðist hún seint þreytast á þessu leikriti. Söguþráðurinn er reyndar frekar áhugaverður og fjallar um Imma ananas sem kúgar alla í Ávaxtakörfunni og ætlar að krýna sjálfan sig konung yfir hinum ávöxtunum. Þegar gulrótin er sett í körfuna þá tekur hún sæti jarðarbersins sem lægst setti einstaklingurinn. Hún og jarðarberið taka sig síðan saman og gera uppreisn í nafni frelsis, vináttu og lýðræðis og fá hina ávextina í lið með sér til að koma í veg fyrir að Immi krýni sig konung. Allt endar síðan vel að lokum ...húrra !!

Í dag lést fyrsti breski hermaðurinn í átökum í Íraksstríðinu - það fer náttúrulega ekki framhjá manni hér enda fylgst vel með stríðinu í öllum fjölmiðlum. Tók eftir því að hlutabréfamarkaðir tóku góða dýfu í dag þegar markaðsaðilar virðast núna gera sér grein fyrir því að Írakar ætla að veita öfluga mótspyrnu við innrásinni og beita ansi lúalegum brögðum til þess. Verður það til þess að stríðið mun dragast á langinn og óvissan er því töluverð. BBC1 sjónvarpar nánast látlaust fréttaumfjöllunum um stríðið en gerðu reyndar hlé á því í nótt þegar óskarinn var sýndur - í staðinn var umfjöllun um stríðið á BBC2. Mínir uppáhaldsleikarar fengu nú ekki viðurkenningu í þessari atrennu en söngvarinn Eminem fékk verðlaun fyrir lag sitt í myndinni 8 mile. Hefur hann því sannað sig sem alvöru listamaður !!!

Engin ummæli: