Langur dagur í London
Lögðum af stað til London í morgun kl. 9 og komum heim núna um kl. 22. Tilgangur ferðarinnar var að skoða skóla sem Jóa hefur áhuga á að fara í næsta haust þ.e. UEL og er hann staðsettur einsog nafnið gefur til kynna í austur-London. Þetta er ansi löng leið frá Reading og vorum við komin skólann rétt fyrir hádegi. Campusinn sem arkitektúrinn verður í er nýbyggður og er við Docklands sem er rétt við Thames - allt saman leit þetta vel út. Síðan tókum við strætó upp í East-Ham til að fá lista yfir leikskóla í hverfinu og kíkja inná leigumiðlanir til að sjá hvort eitthvað væri til leigu þarna í hverfinu. Okkur var tjáð að við værum ansi snemma á ferðinni til að leita að leiguhúsnæði fyrir september og við beðin um að hringja í júlí. Fundum eina miðlun sem var með heilmikið til leigu í hverfi (Postal Code E6) við hliðina á skólanum sem okkur leist vel á. Stutt í skólann, stutt í ASDA og stutt í lestina (DLR). Fórum síðan og skoðuðum Tower of London, Tower bridge og löbbuðum meðfram Thames og upp til St. Paul´s Cathedral. Kíktum inní kirkjuna þar sem messa var í gangi - ansi mögnuð kirkja sem við mælum hiklaust með því að skoða. Fundum út að ekki er mjög gáfulegt að labba um í City á milli kl. 5 og 6 þegar straumurinn af jakkafataklæddum mönnum streymir úr vinnunni. Enduðum í Covent Garden þar sem við settumst inná lítinn huggulegan ítalskan og ódýran veitingastað. Inga Huld var reyndar orðin frekar þreytt á þessum tíma og því var borðað með hraði og við hröðuðum okkur heimí bólið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli