Heldur betur kólnað hér í dag - þurftum að fara út í síðbuxum, peysu og úlpu !! Byrjað var eldsnemma í morgun á því að fara á Farmers Market og þar var keypt léttvín, sveppir og ávaxtasafi. Síðan var ferðinni heitið til Birmingham sem var um tveggja tíma akstur. Þessi borg er alveg skelfilega flókin og erfitt að rata í henni, búðirnar ekki heldur áhugaverðar að mati stelpnanna. Við fundum okkur stæði í miðborginni og stelpurnar fóru í búðirnar og strákarnir hoppuðu uppí næsta leigubíl og var hann vinsamlegast beðinn um að keyra okkur á Villa Park. Þar átti að hefjast klukkan þrjú leikur Aston Villa - Chelsea ... samkvæmt okkar upplýsingum hafði Aston Villa ekki tekist að sigra Chelsea á heimavelli síðan 1994 þannig að heimamenn voru ekki mjög bjartsýnir fyrir leikinn. Um 40.000 manns voru á leiknum ... tvisvar sinnum fleiri áhorfendur en í gær á Reading leiknum. Fyrir utan leikvanginn fyrir leik sáum við kunnuglegan mann og þegar hann heyrði í okkur rauk hann á okkur og sagði ..."Íslendingar hér !!" Var það enginn annar en Guðjón Þórðarson á ferð í góðum fíling og óskaði hann okkur góðrar helgar, júhú !! Tveir Íslendingar eru í þessum liðum, Jóhannes Karl Guðjónsson (Joey) hjá Aston Villa og Eiður Smári hjá Chelsea. Við fögnuðum gífurlega þegar Íslendingarnir voru nefndir á nafn í hátalarakerfinu og litið var á okkur hornauga þegar Eiði var fagnað !! Joey byrjaði inná en fór síðan af velli meiddur eftir um 15 mínútur og Eiður kom ekki inná fyrr en um miðjan seinni hálfleik þannig að við sáum nú ekki mikið af okkar mönnum. Leikurinn var samt mjög skemmtilegur og Aston Villa mikið betri og skoruðu þeir á elleftu mínútu við miklar undirtektir áhorfenda ... og kom stoðsendingin að sjálfsögðu frá Joey !! Eftir mörg færi Villa manna í seinni hálfleik skoruðu þeir aftur á sjötugustuogáttundu mínútu og ætlaði þá allt um koll að keyra. Chelsea komst síðan aðeins í gír undir lokin eftir að hafa ekki getað neitt og skoraði eitt mark á áttugustuogníundu mínútunni og urðu menn þá stressaðir í stúkunni og héldu að þeir myndu missa sigurinn úr höndunum svona í blálokin. Héldu þeir þó sínu og voru menn sáttir við þennan sanngjarna og góða sigur. Síðan var haldið heim á leið og kvöldmaturinn tekinn á hraðbrautinni á Burger-King og farið snemma að sofa til að allir geti verið hressir og kátir fyrir páskaeggin á morgun.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli