Ókum í dag til Bath - borg sem byggð var að mestu af Rómverjum, og voru þeir þar með heit böð, spa og sauna. Var þetta í annað skiptið sem við komum þangað þannig að við vorum nokkuð góð að sýna öðrum merkilega hluti. Fórum inní kirkju, Bath´s Abbey, og löbbuðum um gömul rómversk böð sem byggð voru í kringum heitar vatnsuppsprettur sem eru þarna. Ótrúleg tækni sem Rómverjarnir bjuggu yfir í kringum árið 0 í byggingalist - gólfin byggð þannig að heitt loft lék undir þeim þannig að það var heitt. Pollurinn sem Snorri sullaði í á Íslandi á árum áður, Snorralaug, bliknaði, vægast sagt, í samanburði við þessi böð. Borðuðum kaffi í elsta húsi Bath (1482) og fengum þar Sally Lunn´s Bun sem er bökuð eftir 300 ára gamalli uppskrift. Jóa og amma skoðuðu einnig búningasafn sem hafði að geyma sögu tískunnar síðustu 400 árin - meðal annars var þar kjóllinn sem J-lo var í á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2000 hannaður af Versace ...frááábært. Vorum síðan það sein í bæinn að búið var að loka Safeway þannig að kvöldmaturinn var borðaður á TGI Fridays ... Ingólfi til mikillar ánægju. Er hann að fara heim á morgun þannig að hann er núna að pakka ofan í tösku. Sáum síðan um kvöldið þátt um svikaþáttinn í Viltu vinna milljón og var frekar augljóst hvernig annar keppandi hóstaði til að leiðbeina sigurvegaranum til þess að vinna ...mjög merkilegt.
Haldiði ekki að ég hafi síðan selt gamla hagfræðibók eftir Gravelle á Amazon fyrir heil tuttugu pund ... góður bissness það.
GLEÐILEGA PÁSKA
Páskasunnudagur í dag - dagurinn tekinn í rólegheitunum ...sofið frameftir og bíltúr tekinn um Reading eftir hádegi. Fundum þá öllum til mikillar ánægju ansi flott tivolí hér í einum garði - sérstaklega var Inga Huld ánægð með það og fór hún í öll tæki þar sem hún gat verið í bíl og fór einnig á hestahringekju með mömmu sinni. Um kvöldið var síðan íslenskur graflax og grillað íslenskt lambalæri sem var alveg frábært ...þó ég segi sjálfur frá.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli