Vöknuðum eldsnemma svo hægt væri að fara með Ingólf að versla áður en hann væri keyrður á flugvöllinn - vélin átti að fara í loftið klukkan eitt þannig að það þurfti að leggja af stað frá Reading um klukkan tíu. Við lögðum svo af stað klukkan hálf-ellefu á Heathrow og horfðum svo á hann labba inní brottfararsalinn - Inga Huld sendi skjaldbökuna sína, sem er með kubbunum hennar, með honum heim og varð hún allt í einu voðalega sár þegar hún sá á eftir Ingólfi fara vegna þess að hún fattaði þá allt í einu að skjaldbakan sín var að fara. "Hvar er skjaldbakan mín!!!" æpti hún grenjandi á flugvellinum og var alveg óhuggandi - hún sofnaði síðan þegar við komum aftur í bílinn og svaf í rúma tvo klukkutíma, þegar hún vaknaði var hún alveg sátt við það að skjaldbakan væri á Íslandi að bíða eftir henni.
Við keyrðum svo í tuskubúð rétt hjá Heathrow en var þar víst ekkert merkilegt - fékk stæði beint á móti búðinni og svo heppilega vildi til að þar var einnig pöbb þar sem tengdó gat fengið sér bjór og við sátum þar úti og biðum á meðan Inga Huld svaf og konurnar skoðuðu tuskur. Eftir þetta var stefnunni heitið til norð-austur London, nánar tiltekið Beckton hverfið til að sýna tengdó tilvonandi tilverustað okkar. Að komast frá suð-vestur hlutanum í norð-austur hlutann tók jafnlangan tíma fyrir okkur og fyrir Ingólf að fljúga til Íslands eða tæpa 3 klukkutíma !! Við löbbuðum síðan um UEL campusinn og keyrðum um hverfið og fengum okkur að lokum að borða áður en við keyrðum heim á leið. Heimleiðin var aðeins skjótari og komum við í Tesco búð í Reading til að versla en tengdó var þá orðinn ansi stressaður vegna þess að Barcelona-Juventus var að byrja í sjónvarpinu. Drifum við okkur því heim til að skófla í okkur restinni af lambalærinu og spældum eggjum áður en ég og tengdó skiluðum bílnum og röltum síðan á lókalinn og fengum konuna á barnum til að kveikja á sjónvarpinu til að við gætum horft á leikinn. Hún fann fyrir okkur stöðina á meðan hún lét renna Guinness í glös fyrir okkur og vísaði okkur síðan inní annan sal á barnum þar sem við gátum horft á leikinn á breiðtjaldi - þar gátum við setið tveir í rólegheitunum og horfðum á flottan sigur hjá Juventus í framlengingu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli