Jæja dagurinn í dag var rólegur, sofið út og síðan legið í sólinni. Fengum okkur þó göngutúr út í Safeway og JJB sport þar sem gerð voru stór innkaup, m.a. verslaði afi nýja leikskólatösku fyrir Ingu Huld (rosa flott búin að ganga með hana í allan dag og fara í ferðalög í garðinum). Inga Huld komst reyndar að því í einu ferðalaginu sínu í dag með afa, að garðskúrinn var opinn og sláttuvélin horfin !!! Var Valdimar settur í að kanna málið (var reyndar mjög duglegur að læra í dag) og kíkti til nágrannanna sem söknuðu einnig eitt stykki keðjusagar ... svo að það lítur úr fyrir að véltækjaþjófurinn sé kominn á kreik... Nágranninn sem er að byggja vegg og sundlaug ákvað í framhaldi af þessu að hækka vegginn úr einum metra í tvo metra á hæð, og upplýsti okkur um leið að ein af sex kanínum þeirra væri fótbrotin en erum við ekki viss um að þessi tvö mál tengist.
Þegar við höfðum jafnað okkur á þessum atburðum var grillið hlaðið og tekið til við að elda kvöldmatinn, eftir mat fóru þeir karlmenn svo á lókalinn og horfðu á leik Manchester United - Real Madrid á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu. Því miður fyrir Man. United aðdáendur þá náðu þeir einungis 4-3 sigri sem nægði þeim ekki til þess að komast áfram og hafa því lokið þætti sínum í meistaradeildinni að sinni. :-(
kveðja Jóa.
Frá Lókalnum.
Gaman var að Skotunum á barnum sem héldu með Arsenal og voru þ.a.l. ekki stuðningsmenn mufc - voru þeir frá bænum Paisley og höfðu eitt sinn Íslending í sínu liði (líklega Þórólfur Beck) sem rann alltaf á rassinn í snjónum. Hlógu þeir mikið að þessu en voru sammála því að Eiður Smári væri góður. Ansi gott var þegar þeir kölluðu að liðsmenn United væru "sæd", það var alveg hrikalega fyndið þegar tengdó snéri sér við og spurði þá hvaða orð þetta væri, þetta væri orð sem hann kannaðist alls ekki við. Aftur sögðu þeir "sæd" og allur barinn skellihló þegar skotinn byrjaði að benda á rassinn á sér og sagði "sæd" aftur og aftur. Þá komst tengdó að því að "sæd" er skoskur framburður á orðinu "shit" - mest af öllum hló þó Valdi sem var ekkert að benda tengdó á misskilninginn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli