Jæja, kom að því - rigningin komin og hitastigið lækkaði um heilar 9 gráður, varla hægt að bjóða manni uppá þetta ...hitastigið komið niður í 10 gráður !!! Núna seinnipartinn er reyndar aftur orðið heiðskírt og von á sól næstu daga segja veðurfræðingarnir. Upplesturinn byrjaði á fullu í dag þar sem veðrið var ekki gott til útivistar. Inga Huld er farin að hvíla Ávaxtakörfuna og horfir núna á Talnapúkann á hverjum degi, er það ágætt - hún er farin að telja upp að tíu bæði á íslensku og ensku, ruglar reyndar dáldið saman málunum. Síðan eigum við í mestu vandræðum með að komast hjá því að hún fari að sofa fyrir kl. átta þar sem hún heimtar fljótlega eftir kvöldmat að fara í bólið og láta lesa fyrir sig.
Gamli GSM síminn minn dó alveg um daginn og þurfti ég að fjárfesta í nýjum. Fór því til Vodafone og fann ódýrasta símann í búðinni, Motorola síma sem virkar svona líka aldeilis vel. Kostaði 79.99 pund án nokkurrar skuldbindingar. Sölumaðurinn vildi nú frekar selja mér Ericsson eða Nokia síma og sagði mér að valmyndirnar væru svo flóknar í þessum síma - síminn er reyndar algjör snilld og valmyndirnar mjög góðar og jókst hann enn í áliti hjá mér þegar ég komst að því að það er titrari í honum líka. Ég held að þessir sölumenn fái hærri hlutdeild af því að selja Ericsson og Nokia síma og skýrir það e.t.v. af hverju þeir símar seljast svona vel.
Stríðið virðist eitthvað vera að missa flugið í sjónvarpinu - allavega tala þeir dáldið um landsleikinn á morgun gegn Tyrkjum og segja þeir að þetta sé mikilvægasti leikur síðan heimsmeistarakeppnin var. Það er eflaust alveg rétt enda ekki mikið verið að gerast í landsleikjum síðan heimsmeistarakeppnin var !! En þeir virðast dáldið hræddir við Tyrkina enda eru þetta bronshafarnir frá heimsmeistaramótinu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli