miðvikudagur, apríl 09, 2003

Kalt hjá okkur núna - fer niður fyrir frostmark á nóttunni þannig að bifreiðaeigendur þurfa að skafa, hvurslags eiginlega veðurfar er þetta !! Hélt að við gætum farið að spara gaskyndinguna til að þurfa ekki að eyða svona miklu í gas. Safeway Megastore opnaði í dag þannig að vöruúrvalið jókst í súpermarkaðnum okkar töluvert - getum núna keypt ásamt því að kaupa mjólk og kex, bolla og Plasma sjónvarp fyrir 5000 pund !!! ...haldiði að það sé munur ... Annars var Valdi að lesa á fullu í dag og Jóa að taka til fyrir tengdó. Inga Huld var því frekar leið og var alltaf að ýta á takkana á tölvunni og áherslumerkja í bókina hans pabba - fannst frekar sniðugt að pabbi væri að lita svona í bókina.

Nú auglýsa þeir stöðugt í sjónvarpinu hér að sjónvarpstækið eyðir meira rafmagni á stand-by yfir nóttina heldur en þegar horft er á það eina kvöldstund - allir að ýta á off takkann á sjónvarpinu þegar búið er að horfa og þið sjáið muninn á rafmagnsreikningum.

Framboðslistarnir tala nú ekki um annað en að gera samkomulag um kosningabaráttuna - samfylking vill ekki sjónvarpsauglýsingar, vinstri grænir vilja ekki að frambjóðendur verði settir í pínlega aðstöðu og hvað skyldi koma næst - hvernig væri bara að semja um úrslitin og spara dáldinn pening sem hægt væri að veita til erlendra námsmanna ???

Engin ummæli: