þriðjudagur, apríl 08, 2003

Hringur um London

Byrjuðum daginn snemma á því að ná í bílaleigubílinn sem við höfðum pantað - var það líka þessi fíni Ford KA. Áður en við lögðum af stað til London þá fórum við í Safeway og keyptum ýmislegt sem erfitt er að bera heim - 20 lítra af vatni, 10 lítra af mjólk, 4 lítra af djús og 3 lítra af bjór !! Fylltum við skottið af þessu og fórum með heim - minnkar þetta heimburðinn ansi mikið á næstu dögum. Við stefnunni heitið til Austur-London og keyrðum við norður fyrir London eftir M25 og skoðuðum síðan 2 leikskóla í hverfinu sem við erum að spá í að flytja í. Hittum síðan íslenska stelpu sem er að nema á öðru ári í arkitektúr í UEL og sýndi hún okkur aðstöðuna sem hún hefur í skólanum. Á leiðinni heim keyrðum við svo suður fyrir London og fórum enn eftir M25 - vikum reyndar af leiðinni til að skoða kastala en hann var síðan lokaður þegar við komum að honum - var þetta samt ágætis rúntur eftir sveitavegunum sem minntu eilítið á þjóðvegi Íslands, þröngir, holóttir og allir í beygjum. Eini munurinn var að ekki sást skógurinn fyrir trjánum. Lentum síðan í smávegis flækju á leiðinni heim þar sem við heyrðum í útvarpinu að það væri tugkílómetra röð á M25 vegna áreksturs þá fórum við fyrr af hraðbrautinni og keyrðum eftir sveitavegum langleiðina heim og eru þeir ekki alveg eins vel merktir einsog hraðbrautin.

Bíllinn kom heldur betur á óvart - keyrðum á honum um 250 mílur og eyddi hann ca. 25 lítrum - var hann góður í borgarakstrinum en mest kom á óvart hversu fínn hann var á hraðbrautinni, haggaðist ekki þar sem við þutum áfram um sveitir Bretlands ... mælum hiklaust með þessum bíl.

...las að Solla ætlar ekki að hækka skatta ef hún kemst til valda á Íslandi (ásamt Helga Hjörvari) - minnir að ég hafi einhvern tímann lesið þetta áður ... ??

Engin ummæli: