mánudagur, apríl 07, 2003

Komumst að því að marsmánuður var metmánuður í sólartímum talið hér í Bretlandi frá því ca. 1960 - síðan ég byrjaði í páskafríi fyrir um 25 dögum hefur verið tvisvar skýjað og einu sinni rigning ...ansi magnað. Fórum í bæinn í dag í verslunarleiðangur - keyptum okkur ferðatösku í Debenhams á 60% afslætti, var það fínn díll, svaka fín taska með hjólum, haldföngum og öllu saman. Ég fékk buxur fyrir sumarið og Jóa sumarjakka - einnig bættum við upp diskinn sem brotnaði um daginn ...vonum að ekki brotni annar í staðinn. Inga Huld fékk ekki neitt og var eitthvað sár með það en frískaðist síðan þegar við minntum hana á það að hún var nýbúin að fá sokka og þá fengu mamma og pabbi ekki neitt - var hún þá voða ánægð !! Leist henni líka vel á töskuna sem hún getur sett dótið sitt í þegar hún kemur heim til Íslands í sumar. Tókum síðan til í garðinum, sláttur og gamlar greinar teknar - voða fjör ...búinn að slá tvisvar fyrir páska !!

Engin ummæli: