fimmtudagur, apríl 03, 2003

Löbbuðum um bæinn í dag og leituðum að páskaskrauti (þ.e.a.s. Jóhanna leitaði) en fundum ekki neitt. Bretarnir virðast ekki mjög hrifnir af páskaskrauti - kaupa sér bara Kit-Kat eða Bounty páskaegg þar sem súkkulaðistykki fylgir með. Pantaði í gær á emaili miða á leikinn Aston Villa - Chelsea og fékk þá í pósti í dag, fannst mér það skjót og góð þjónusta. Kannski ekki margir að fara á leikinn ...sem verður þann 19. apríl - en gaman verður að fylgjast með Eiði og Jóhannesi Karli Guðjónssyni. Dagskráin fyrir tengdó er farin að taka mynd á sig:
Reading - Nottingham Forest þann 18. apríl.
Aston Villa - Chelsea þann 19. apríl.

Gaman að fylgjast núna með kosningaloforðunum - hvaða flokkur býður flottasta pakkann. Sá að Framsóknarflokkurinn býður pakka sem samanstendur 56% af körlum og 44% af konum - og leggur flokkurinn áherslu á að þrjár konur leiði listann. Skil ekki þessa áherslu - hefði frekar haldið að þeir myndu leggja áherslu á það að það væri gott og hæft fólk á listanum í stað þess að taka það endilega fram hvers kyns það er. Skildi þetta fólk vera ljóshært eða dökkhært ?? Þeir enda síðan stefnuskrána á því að afnema beri verðtryggingu lána til skemmri tíma en 20 ára - eru ekki stofnanir í einkaeigu sem bjóða þá þjónustu að veita lán ?? Það hljóta að vera neytendur sem velja það hvort lánið þeirra verði verðtryggt eða óverðtryggt - bæði lán eru í boði ...allavega var það þannig þegar ég yfirgaf landið.

Engin ummæli: