sunnudagur, apríl 13, 2003

Tengdó var sýnd London á einum degi og eru þau nú sofandi í sófanum heima fyrir framan sjónvarpið. Fórum með lestinni til London í morgun og byrjuðum á að labba niður Regents street og fara í Hamleys (dótabúð á 6 hæðum) síðan farið framhjá Buckingham og upp að Big Ben. Maraþon var í gangi þannig að mjög mikið var af fólki á þessu svæði og götur lokaðar - olli það ýmsum töfum í dagskrá okkar. Þegar búið var að skoða Big Ben var farið með undergroundinu og Tower of London og Tower Bridge skoðað - síðan labbað upp til City og þá þurfti að finna McDonalds fyrir Ingó áður en hann færi yfir um. Þegar það var afgreitt var farið aftur í undergroundið og nú var farið niður til Soho og þá þurfti að friða gamla með því að stoppa á einum pub. Enduðum á því að borða á kínverskum veitingastað í Chinatown - sami staður og Valdi borðaði á í útskriftarferðinni með hagfræðinni og stóð hann enn fyrir sínu. Er gamla settið þá búin að sjá nánast allt merkilegt í London enda eru þau ansi þreytt.

Engin ummæli: