Gott veður og blíða í dag - ef kíkt hefði verið á síðuna í dag hefði daman á hægri hliðinni verið ansi léttklædd !! Borgar sig að kíkja oft á síðuna okkar vegna þess að næstu daga er spáð heiðskíru og 25 stiga hita ... ekki vera hissa á því að ekki verði skrifað mikið næstu daga þar sem við ætlum bara að vera á ströndinni næstu daga að sóla okkur.
Jóa þrælaði settinu og Ingó út í dag - byrjaði með því að sýna þeim háskólasvæðið og fór svo með þau niður að Thames í piknikk. Sýndi þeim þar skipastigann sem er eiginlega bara trappa og endurnar gáfu skít í Ingó, í orðsins fyllstu merkingu !! Inga Huld stjórnar öllum hægri vinstri ... Ingó stattu þarna ... sittu þarna ... vertu þarna ... vertu svona ... ég taka mynd af þér ... gerðu svona ... Ég var heima að læra í dag í góða veðrinu en fær loks að fara út á morgun þar sem ég þarf að keyra bílinn - erum búin að finna baðstrendurnar í Englandi og stefnum þangað í sólina með bíkiníið ... jibbý ... lúxus líf í bretalandinu. Gömlu hjónin eru að verða útkeyrð þannig að þau bíða bara eftir að fá að sitja í bílnum og helst eftir því að komast á hælsubælið í Hveragerði.
Fékk reyndar að setja saman grill sem tengdó keypti í dag þar sem þau vildu endilega grilla í góða veðrinu. Þannig að þegar lærdómnum lauk þá fékk ég bjór og skrúfjárn og setti saman grillið í blíðunni og fékk síðan einnig að grilla - kem að góðum notum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli