miðvikudagur, maí 28, 2003

Nú er nóg að gera - allt dótið að verða komið ofan í kassa og fötin ofan í tösku. Við erum síðan búin að leigja geymslu þar sem við geymum dótið okkar í sumar og mun ég fara með það þangað á mánudaginn í sendiferðabíl sem ég er einnig búinn að leigja. Einnig leigðum við bíl fyrir morgundaginn til að keyra á Stanstead - eru stelpurnar að fara þaðan annaðkvöld til Íslands. Það er semsagt mikið skipulag í gangi og vonandi að allt gangi upp. Ég fæ að hafa einn disk, gaffal og glas um helgina og er síðan tilbúinn kassi til að setja það ofan í áður en ég flyt á stúdentagarðana. Þar fæ ég eitt herbergi með baði og er síðan sameiginlegt eldhús á ganginum með nokkrum íbúðum ...mikið fjör.

Síðasti dagurinn hennar Ingu Huldar var á leikskólanum í gær og var hún allan daginn á meðan við vorum að pakka. Hún fór með kökur með sér sem hún gaf krökkunum svo með drekkutímanum. Hún kvaddi svo alla voða vel ...var búin að tala um það lengi að hún þyrfti að kveðja alla á leikskólanum og að þetta væri síðasti dagurinn þannig að hún var frekar sátt við þetta. Var reyndar búin að segja að það væri ekki gaman að segja bless og þá sérstaklega ekki við Jack sem var sérstakur vinur hennar sem gaf henni stundum blóm og svoleiðis.

Engin ummæli: