föstudagur, október 17, 2003

Í gær fóru Jóa og Eva til London að skoða söfn - ég keyrði Ingu Huld í leikskólann og var síðan að dunda mér heima við þangað til ég þurfti að ná í hana aftur. Snemma var farið að sofa þar sem vakað var svo lengi á miðvikudagskvöldið !! ... erum orðin svo gömul.

Mest lítið var gert í dag - Jóa fór þó í skólann og fékk verkefni vetrarins afhent og á hún að byrja á því að mæta á morgun hjá Tower Bridge þar sem hópurinn hennar er með götu sem er þar rétt hjá sem á að hanna. Á að byrja á því að skoða hana og fara síðan á National Portrait safnið og skissa eitthvað þar. Þannig að ég, Inga og Eva verðum að drepa tímann í sameiningu á morgun - ætli við förum ekki bara að skoða miðbæinn í Greenwich eða eitthvað svoleiðis - ætlum allavega ekki til Tower Bridge þar sem búið er að vara við umferðartöfum þar vegna þess að Blaine karlinn á að koma úr búrinu á sunnudaginn. Eva eldaði kvöldmat, rosafína svínasteik sem hún kom með frá Danmörku. Var þetta 2.3 kíló af reyktri skinku sem hún kom með og kostaði þúsundkall í Danaveldinu - ekki dýrt kjöt það. Smakkaðist þetta sannarlega listavel hjá henni, brúnaðar kartöflur, waldorfsalat og alles en Jóa þurfti þó að bjarga henni með sósuna þar sem í óefni stefndi með hana. Núna eru skvísurnar farnar í bíó - fóru þær á Misty River með stórleikurunum, Sean Penn, Tim Robbins og síðast en þó síður en svo síst, stórstirninu fótalipra Kevin Bacon. Hefði ég viljað sjá þá mynd en þetta var bara eina myndin í bíó núna sem þær höfðu nokkurn áhuga á því að sjá. Ætluðu að fara á einhverja stelpuvælu en því miður var hún bara sýnd klukkan tvö á daginn.

Annars þá beið ég í allan dag eftir því að fá sent ADSL mótald frá BT í dag en varð fyrir miklum vonbrigðum þar sem það barst mér ekki. Hringdi loks í BT til að athuga með stöðu mála og var þar tjáð af starfsmanni sem þótti þetta mikið miður að starfsmenn Royal Mail hefðu verið í einhverjum verkföllum í vikunni og þegar það gerist þá hlaðast verkefnin upp og ætti ég að fá það vonandi á morgun en líklega ekki fyrr en á mánudag. Átti ég að hringja seinnipart mánudags ef það hefði ekki enn borist og myndu þeir þá tala við Konunglegu bréfþjónustuna.

Með kveðjum frá Lullingstone Lane.

Engin ummæli: