Jóa fór í skólann í dag og þurfti að velja í hvaða hóp hún á að vera næsta skólaárið. Kennarar héldu kynningar í gær á sínu verkefni og síðan áttu nemendur að velja þrjú verkefni sem þau hefðu áhuga að vinna við. 18 nemendur eru saman í hóp, 9 af öðru ári og 9 af þriðja ári. Í dag voru síðan viðtöl þar sem kennarar völdu nemendur inn í sín verkefni - Jóa komst inn í fyrsta val sitt og þurfti því ekki að fara í nema eitt viðtal. Var hæstánægð með þetta og er því í fríi á morgun fimmtudag en byrjar á föstudaginn og þarf að mæta í skólann einnig á laugardag til að fara á söfn.
Ég og Eva fórum til London í morgun að skoða stórborgina og leita uppi KFC stað þar sem Jóa hefur ekki áhuga á því að borða þannig mat. Jóa kom samt til okkar fljótlega eftir hádegi þar sem hún var svo fljót að afgreiða viðtalið sitt. Við fórum svo á British Museum og skoðuðum breytingarnar sem búið er að gera þar. Búið er að byggja risastórt glerþak yfir garð sem er á milli húsanna sem tengist í miðjunni á hringhúsi sem er gamalt bókasafn sem búið er að gera upp. Mjög flott og alveg frábært að skoða þetta. Löbbuðum Tottenham Court Road og fundum þar flottar búðir en þarna höfum við ekki skoðað okkur um áður. Síðan þurfti að sækja Ingu Huld á leikskólann og var hún dáldið miður sín þar sem allir krakkarnir voru farnir heim og hafði hún verið ein í 45 mínútur - var henni greinilega ekki farið að lítast á blikuna og talið að foreldrar hefðu gleymt sér. Við keyrðum síðan á Canary Wharf sem er á Docklands þar sem háhýsin eru, rúntuðum þar aðeins um og lögðum síðan og fengum okkur að borða. Keyrðum síðan sem leið lá inn í bæinn og yfir Tower Bridge - alveg magnað að keyra þarna um, sérstaklega í myrkri þar sem allt er lýst svo vel upp. Sáum David Blaine enn og aftur í búrinu!! Þá var haldið heim á leið og sofnaði Inga Huld á leiðinni alveg búin á þessu öllu saman.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli