sunnudagur, nóvember 23, 2003

Heimsmeistarar

Aftur rigndi í dag - greinilegt að breska rigningin er komin á stjá. Við fórum þó í miðbæinn í dag - var það af ásettu ráði að fara á sunnudegi vegna þess að ekki þarf að borga Congestion Charge um helgar og ekki þarf að borga í stöðumæla á sunnudögum og bílastæðahúsin eru einnig mun ódýrari. Við byrjuðum á því að keyra á Tottenham Court Road til að fara í tvær búðir þar og síðan var haldið á Regent Street. Þar fundum við stæði í hliðargötu og ef ég hefði þurft að borga þá var gjaldið 1 pund fyrir 20 mínútur ... takk fyrir !!! Röltum síðan í búðir í rigningunni og skoðuðum jólaljósin á Oxford, Regent og Bond Street - alltaf jafnleiðinlegt að labba um á Oxford í rigningu þar sem fólk er stórhættulegt með allar þessar regnhlífar og eru sumar hverjar ansi stórar. Við fundum það sem við leituðum að, brúðkaupsgjöf og einnig snemmbúin jólagjöf sem Jóa ætlar að taka heim með sér ... ekki meira um það hér.

Annars þá ríkir mikil gleði nú í Bretlandi og er það ekki vegna þess að hann Georg er farinn heldur vegna þess að við erum heimsmeistarar. Búið er að bíða eftir þessum titli í 37 ár og þess vegna orðinn langþráður. Urðum við sem sagt heimsmeistarar í rugby með ævintýralegum sigri á landsliði Ástralíu í leik sem fram fór í gærnótt í Ástralíu. Vannst sigurinn í framlengingu og með rosalegu marki á síðustu sekúndunni og er markaskorarinn hetja Bretlands þetta árið.

Engin ummæli: