laugardagur, nóvember 08, 2003

Loksins er farinn að berast okkur póstur aftur þar sem póstútburðarmenn hafa verið í verkföllum - veit í raun ekki alveg hvernig staðan er á þessu. Fékk í dag einmitt bréf sem var með flugmiða Jóhönnu og var settur í póst þann 3. nóvember !! Sem betur fer þurfti hún ekki að vera með miðann sjálfan með sér í flugið heldur bara númerið sem hún fékk þegar hún pantaði miðann á netinu.

Við Inga fengum okkur beikonsamloku í hádeginu að ósk hennar Ingu. Þegar við vorum að ræða það í vikunni hvað við ættum að versla til að eiga í matinn á meðan mamma væri erlendis þá var eina beiðnin að það ætti að kaupa beikon. Inga borðaði dáldið af samlokunni og fannst beikonið gott - annars þá borðar hún ekki annað álegg en smjör, smurost og ost !!

Ákvað í gærkvöldi að þar sem ég var að keyra í myrkri að athuga hvernig staðan væri á aftari stefnuljósunum - þegar ljósin eru kveikt á bílnum (ekki þarf að hafa kveikt á daginn) og ég nota annað hvort stefnuljósið þá er bara diskó aftan á mínum !! Öll ljósin blikka í einu og það er rosa stuð ... mun betra að nota ekki stefnuljósið þar sem að þetta ruglar nú eflaust bílstjórann fyrir aftan frekar heldur en að gera eitthvert gagn. Sem betur fer þá kvikna bremsuljósin þegar ég bremsa - það hefði verið öllu verra ef þau hefðu ekki virkað. Verð nú að fara með bílinn til bílasalans á mánudaginn þar sem það er stórhættulegt að geta ekki notað stefnuljósin í þessari miklu umferð sem er hér, sérstaklega á hraðbrautinni.

Fór annars í gær í áhugavert viðtal hjá stórum fjárfestingabanka - var hjá þeim frá kl. 12 til kl. 4:20, þurfti þá að hraða mér að sækja Ingu Huld þar sem leikskólanum lokaði kl. 4 !! Tók leigubíl og að sjálfsögðu voru umferðastíflur en þetta var þó allt í lagi þar sem ég var búinn að láta vita að ég yrði seinn á ferðinni. Held annars að viðtalið hafi gengið ágætlega - talaði við 5 manns og skildist mér að ég yrði boðaður aftur í næstu eða þar næstu viku til að hitta fleiri yfirmenn ... spennandi ... sem sagt en ferlega leiðigjarnt að vera alltaf að þylja aftur og aftur hvað maður hefur gert, vill gera og hefur áhuga á.

Engin ummæli: