sunnudagur, nóvember 09, 2003

Við fórum í bíó í dag að sjá hina margumtöluðu teiknimynd Finding Nemo sem fjallar um tvo fiska að leita að syni annars þeirra. Inga var nú dáldið smeyk í bíóinu og sat hjá mér allan tímann. Myndin byrjaði líka með bölvuðum látum og hamagangi þannig að margir krakkar voru hálfsnöktandi þarna inni. Hákarlinn í myndinni er heldur ekkert voðalega fallegur á að líta þó að hann er nú ekki eins vondur einsog maður myndi ætla. Við skemmtum okkur þó að lokum bara vel í bíóinu og held ég að hún hafi bara verið ánægð með bíóferðina.

Inga er núna farin að sofa - lásum við söguna um svikahrappinn hann Litla-Kláus og illmennið Stóra-Kláus. Ekki mjög skemmtileg saga fyrir þriggja ára krakka. Í stórum dráttum er sagan um Litla-Kláus sem sveik út peninga úr saklausum bónda með því að selja honum hrossskinn sem galdrakarl og sakaði blásaklausan kráareiganda um að hafa drepið ömmu sína en féllst á að tilkynna það ekki gegn greiðslu !! Síðan er það hann Stóri-Kláus sem drap hesta með stórum lurkum sem og hana ömmu sína með því að höggva hana í hausinn með exi og reyndi síðan að selja hana lyfsalanum !! Einnig ætlaði hann að drepa Litla-Kláus með því að henda honum í poka í ána en á leiðinni skipti Litli-Kláus við eldgamlan kúabónda þannig að hann drap rangan aðila ... hér var þó bót í máli að kúabóndinn vildi dæja þar sem hann var orðinn svo hrumur. Svo er verið að segja að ofbeldið í sjónvarpinu og tölvuleikjunum sé slæmt fyrir börnin - get ekki séð að það sé nokkuð nýtt við það að börnum sé skemmt með morðum, svikum og prettum !!!

Engin ummæli: