mánudagur, nóvember 17, 2003

Tók góðan 53 mínútna hlaupahring í gær - var 5.5 mílur að lengd sem eru 8.8 kílómetrar. Þetta fannst mér ágæt vegalengd - þyrfti kannski að lengja hringinn uppí 10 kílómetra og verð þá orðinn ansi góður ... að mér finnst !!

Var annars stöðvaður í gær af The Mets á leiðinni í Blackheath - gleymdi að minnast á það í gær ... The Mets er sem sagt The Metropolitian Police !!! Þegar ég kom að ljósum (einu ljósunum á leiðinni) þá gaf ég í til að ná gula ljósinu og fór yfir í rauninni á appelsínugulu. Skyndilega uppúr þurru þá heyrðum við sírenuvæl og birtist allt í einu lögreglubíll fyrir aftan mig - við ætluðum ekki að trúa eigin augum og þegar ég hægði á mér og stoppaði þá stoppaði hann fyrir aftan og lögreglumaður kom út og bað mig vinsamlegast um að koma út fyrir að ræða málin !! Spurði hann mig hvort ég vissi af hverju hann hefði stöðvað mig - ég tjáði honum að líklega væri það af því að ég hefði keyrt yfir á gulu ljósi sem ég kallaði "yellow". Hann sagði mér að ég hefði gefið í til að ná gula ljósinu, sem hann kallaði "amber", í stað þess að hægja á mér og stöðva sem ég hefði haft nægan tíma til. Tilkynnti hann mér einnig að í rauninni hefði þetta verið rautt ljós sem hann gæti sektað mig fyrir, ég fengi punkta á ökuskírteinið og gæti verið dreginn fyrir dómstóla !! Hann hafði þó ekki áhuga á því og spurði hvort ég væri virkilega búinn að ná bresku ökuprófi - ég sagði honum að ég væri með evrópskt ökuskírteini frá Íslandi og hann vildi þá vita hvernig þetta væri á Íslandi með gula ljósið ... hvað maður ætti að gera þegar það kæmi gult ljós þar ... vildi vita það vegna þess að hann vissi ekki hvernig þetta væri á Íslandi. Mig langaði helst að segja honum að við værum ekki með götuvita þar sem sleðahundarnir okkar væru hvort sem er allir litblindir ... en nennti ekki að rífast í honum þar sem hann virtist í nokkuð góðu skapi. Ákvað hann að lokum að gera ekkert í málinu heldur gaf mér nokkrar lexíur í því hvað Bretar væru lélegir bílstjórar og að ég ætti að keyra varnarsinnað og gera þetta ekki aftur. Í rauninni góðir punktar hjá manninum og verður kannski til þess að við einbeitum okkur betur við aksturinn. Ég er nefnilega einu sinni búinn að reka hliðarspegilinn í hliðarspegil á öðrum bíl sem var í stæði, Jóa er búin að bakka á BT sendiferðabíl sem var fyrir aftan innkeyrsluna okkar og einnig strjúka allri vinstri hliðinni við stóran flutningabíl í ferjunni !! Einsgott að hér hafi ekki verið keyptur splunkunýr og rándýr eðalvagn ...

cheers

Engin ummæli: