Ég fór í bæinn í gær og ætlaði að finna mér gott bókasafn til að geta lesið í ýmsum fjármálatímaritum svona til að vera ferskur. Það var búið að benda mér á bókasafnið í LSE og ég gæti líklega komist þar inn með stúdentapassanum frá Reading - en nei, það var ekki svo einfalt. Ég þurfti að vera með skriflega staðfestingu á skólavist í Reading og einnig skriflegt frá skólabókasafninu í Reading að ég hafi ekki fundið það sem ég var að leita að þar ... flókið mál. Rölti ég því á British Librari sem var um 25 mínútna gangur og hélt að lítið mál væri að komast þar inn, það hlyti nú að vera almenningsbókasafn. Þetta er ekkert lítið flott bókasafn og jafnfram flókið að komast inn !! Þurfti að byrja á því að sækja um aðgang í tölvu og var síðan kallaður til þjónustufulltrúa - hún vildi fá að sjá staðfestingu á heimilisfangi mínu og einnig fá upplýsingar um það að ég hefði ekki getað fundið á öðrum bókasöfnum það sem ég ætlaði að finna þarna. Ég bullaði eitthvað um að mörg tímaritanna hefðu ekki verið til á öðrum almenningsbókasöfnum og sannfærðist hún loks um að láta mig fá passa eftir að hún hafði fengið að sjá ökuskírteinið, kreditkort og þrjú debitkort ásamt skólakortinu. Fékk þá vikupassa með mynd af mér á - mjög formlegt. Þurfti þá að fara í kjallarann og losa mig við jakka og tösku þar sem það er ekki leyfilegt að hafa það með sér inná bókasafnið sjálft. Þá var komið að því að finna lestrarsalinn sem ég gat fundið mitt efni í og þar var vörður sem þurfti að skoða passann minn. Gat svo pantað bækur ef ég þurfti og komu þær þá til manns eftir klukkutíma nema ein bók sem ég vildi kíkja í - þurfti að bíða eftir henni í tvo daga þar sem hún var í geymslu í Norður-Englandi, fannst það nú óþarfa vesen. Fann síðan aldrei tímaritin sem ég vildi helst skoða !! ...virtust ekki vera til á þessu annars magnaða bókasafni ...
En maður labbar sem sagt ekki bara inná British Library til að kíkja í einsog eina bók eða moggann.
Í sjónvarpinu á mánudagskvöldið var "áhugaverður" þáttur um Atkins kúrinn ... alltaf heimildarþættir í gangi. Merkilegast þótti mér að sjá að þessi "Revolution Diet" sem ég hélt að væri glænýtt fyrirbæri er alls ekkert nýtt - maðurinn gaf fyrst út bókina um 1972 og fann uppá þessu eftir að hafa lesið grein um þetta í læknatímariti. Síðan þá hefur hann endurskrifað bókina allavega þrisvar sinnum og alltaf er þetta jafnmikið "revolution". Þetta er annars orðið mikið Atkins veldi - í USA er hægt að panta Atkins mat heim til þín borgar 35 dollara pr. dag fyrir það og það er búið að opna veitingastaði þar sem þú pantar Atkins rétti. Fyndið annars í þættinum að þá fundu þau einhverja stelpu sem var dáldið yfirvigta og var hún búin að falla einu sinni á inntökuprófi í lögregluskólann. Hún átti tvo sénsa eftir og núna voru sko bara 4 vikur í prófið og hún þurfti sko að létta sig til að geta hlaupið hraðar sko ... hvað er þá betra heldur en Atkins kúrinn ??!! Hún var síðan vælandi öðru hvoru í þættinum af því að þetta var svo erfitt - í lokin náði hún að sjálfsögðu ekki prófinu ... spurning um að stelpan hefði kannski átt að fara að æfa hlaup strax eftir að hún féll í fyrsta skiptið ... En niðurstaðan sem ég fékk útúr þættinum var semsagt sú að: Atkins kúrinn eykur ekki hlaupahraðann þinn !!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli