miðvikudagur, september 06, 2006

Eftir vinnu fórum ég og Inga Huld útað Hudson River og var Inga á scooternum sínum. Við fórum með nokkur blöð í skólann hennar Ingu Huldar og síðan fengum við okkur göngutúr meðfram ánni. Sáum við þar ýmislegt sniðugt - flugvél lenti á ánni og lagði síðan að árbakkanum, leigubílabátur þeysti nokkrum sinnum framhjá og síðan voru menn að veiða. Þeir voru dáldið spaugilegir með nokkrar stangir fastar við grindverkið og búnir að hengja upp bjöllur á stangarendana. Við sáum einn fisk veiddan - ég bjóst nú ekki við að sá væri glæsilegur en hann var alveg silfraður og fínn. Maðurinn sem veiddi hann var mjög stoltur og sagðist hafa verið þarna í 13 klukkutíma og ekki fengið neinn fisk. Hann hélt því fram á meðan að hann var að hala inn að hann væri 80 pund ... en mér sýndist hann svona ca 20 sinnum smærri en það ... samt ágætis fiskur.

Á myndinni má sjá Empire State til vinstri - í hægri turninum beint fyrir aftan Ingu Huld er skólinn hennar sem er á jarðhæð alveg við ánna og lengst til hægri er bygging UN.

Engin ummæli: