föstudagur, september 08, 2006

Inga Huld fór aðeins í skólann sinn í gær - það var kynningardagur og fengu foreldrar að mæta með og hitta kennarana, skoða skólastofurnar, bókasafnið og svoleiðis. Þetta leit allt saman voðalega vel út og fyrsta verkefnið hjá krökkunum var að taka verðmiðana af dótinu þar sem allt er nýtt. Einnig þurftum við að skipta öllum skólabúningsfötunum og fá minna þar sem skólabúningssalinn klúðraði málunum ... við vorum ekki þau einu sem lentu í þessu og virtist þetta hafa farið út um þúfur hjá manninum. Við eigum að fá nýtt sent fyrir fyrsta skóladaginn á miðvikudaginn í næstu viku. Inga Huld er orðin spennt að byrja í skólanum og er það vel skiljanlegt að hún sé orðin leið á því að hanga svona. Hún fór á scooternum sínum í skólann og virðist það ætla að verða framtíðarferðamátinn hjá henni og er hún farin að renna sér af miklum móði á þessu apparati.

Annars virðist vera ágætis veðurspá fyrir helgina og hefur hlýnað hér aftur ... ég þarf að fara að taka sængina mína úr sængurverinu aftur þar sem það er orðið svo heitt hér inni.

cheers

Engin ummæli: