þriðjudagur, september 12, 2006

Inga Huld og Herra Níels eru orðnir bestu vinir (nema þegar Herra Níels ruglar öllu playmoinu) og hlaupa saman fram og tilbaka í íbúðinni. Á myndinni má sjá uppáhaldsleikfangið sem virkar eiginlega einsog veiðistöng - þetta finnst Herra Níelsi voðalega gaman að elta og stökkva á eftir og er í miklum veiðiham, hefur hann nokkrum sinnum "slátrað" músinni sem er á endanum. Hann er líka mjög forvitinn og skoðar allt sem kemur heim og treður sér ofaní og gegnum ýmislegt. Við vorum t.d. farin að sofa í gær þegar mjög veiklislegt mjálm heyrðist öðru hvoru. Nokkrum sinnum fór ég að leita að Herra Níelsi til að athuga hvað væri að en hann fannst hvergi. Að lokum ákvað ég að tékka í fataskápinn og viti menn, þar var Herra Níels ekki alveg ánægður með tilveruna.



Loksins, loksins byrjar Inga Huld í skólanum á morgun og hlakkar hana mikið til - fengum hluta af skólabúningunum í kvöld en þó ekki allt þar sem fyrsta sendingin var alltof stór. Sumarkjóllinn hennar er bleikur og lítur alveg ágætlega út en vetrarbúningurinn er rauðgrá köflóttur kjóll sem er ekki alveg okkar tískulitur en virðist mjög klassískur breskur skólakjóll ... það verður bara að venjast.

Barnfóstra byrjaði hjá okkur á mánudaginn og verður helsta verkefni hennar að sækja Ingu Huld í skólann og koma með heim þar sem Jóhanna er alltaf svo seint í skólanum sínum. Henni og Ingu Huld kemur mjög vel saman og eru þær búnar að fara út á leikvöll og í göngutúra á scooternum. Stefnan er einnig sett á að nýta hana sem barnapíu einhver kvöld þannig að það sé hægt að fara að kíkja á lífið hér í NYC!!

Ætli maður reyni ekki núna að kjósa hann Magna Rockstar Supernova nokkrum sinnum í viðbót á rockstar.msn.com - það er nokkuð merkilegt að fólk hér virðist taka eftir honum og þeirri staðreynd að hann sé Íslendingur ... nú er það ekki bara Björk og Sigurrós frá Íslandi heldur einnig Magni.

cheers

Engin ummæli: