laugardagur, september 16, 2006

Það var heilmikil dagskrá fyrir daginn. Við vorum komin á fætur fyrir klukkan níu og fyrsta verk var að prófa tölvusímann sem við hlóðum niður og fengum loksins í gegn hjá Símanum. Prófuðum að hringja í Unufellið og Sunnubrautina og allt virkaði í himnalagi. Allavega þá er símanúmerið 499-0606 og þeir sem eru á Íslandi eða með aðra tölvusíma geta hringt í þetta númer og borga íslenskt innanlandssímtal fyrir - við svörum ef við erum heima og kveikt er á tölvunni ... dáldið sniðugt. Síðan var stefnan tekin á að skrá Ingu Huld í ballet - við vorum búin að finna ágætis skóla, Joffrey Ballet School, sem er á Avenue of the Americas, öðru nafni 6th Avenue á milli 9th og 10th street sem er ca 30 mínútna gangur frá okkur - hingað mun hún koma í einn og hálfan tíma eftir skóla á fimmtudögum og nema þá list að dansa ballet. Eftir skráninguna þurftum við að kaupa balletföt og var okkur bent á að fara í Danskin á milli 67th og 68th og kaupa "Light Blue Leotard", "Pale Pink Tights" og "Pink Leather Ballet Slippers". Þetta fannst Ingu Huld nú ekki leiðinlegt verkefni og hlakkar mikið til að byrja í alvöru ballet skóla! Heimleiðin frá búðinni gekk þó ekki vel og virtist ekkert ganga upp hjá okkur í metróinu - við lærðum að A línan er express línan fyrir C línuna og stoppaði ca 60 götum ofar heldur en þar sem við ætluðum að fara út. Síðan voru tvær línur lokaðar þannig að heimferðin sem var áætluð 30 mínutur tók 90 mínútur.


Jóhanna þurfti að skreppa í skólann að vinna í einhverju hópverkefni og ég og Inga Huld höfðum það verkefni að kaupa dót fyrir Herra Níels, hann var nefnilega búinn að bókstaflega slátra músinni á veiðistönginni, bæði búinn að slíta allar fjaðrir af henni og loks naga teygjuna í sundur af sjálfri stönginni. Við fundum ýmislegt sniðugt, meðal annars bolta fastan innan í hring þar sem Herra Níels getur ýtt í boltann og snýst hann þá í hringi, eltir hann boltann og reynir að ná honum en boltinn fer bara hraðar og Herra Níels nær honum ekki - þannig gengur þetta áfram endalaust og finnst honum þetta mjög sniðugt. Ingu Huld fannst samt ekki sniðugt þegar við löbbuðum upp Park Avenue að það var lokað að hluta vegna þess að það var verið að taka upp bíómynd - þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem við lendum í því að þurfa að taka á okkur krók vegna bíómyndaupptöku. Á götuna var búið að raða drulluskítugum bílum og stilla upp grasi og stráum svona hér og þar - síðan var rauður og glæsilegur Ford Mustang með áfastar myndavélar tilbúinn til að vera filmaður - í honum var stór hundur í framsætinu sem var reyndar ekki alvöru. Við erum þó spennt að sjá hvort við munum sjá þessa mynd í bíó en allavega sáum við engan frægan á svæðinu. Inga Huld var þó alveg viss um að það væri ekki verið að filma Ice Age 3 þar sem að það þyrfti að gerast uppi í fjöllum þar sem snjórinn væri en það væri þó ekki gott að þurfa að loka skíðasvæðinu á meðan filmað væri ... ýmsar pælingar í gangi ...


Í kvöldmatinn var síðan grillaður skötuselur með kartöflum og salati. Í tilefni laugardagsins var einnig desert - ávextir með rjóma ... namminamm ...

cheers

Engin ummæli: