Þar sem barnapían er í fríi þessa vikuna og Jóa er byrjuð á sumarönninni í skólanum þá hætti ég snemma í dag og sótti Ingu Huld í skólann klukkan 3. Þá hófst mikil dagskrá þar sem það mátti ekki breyta út af neinum hefðum sem hún og barnapían fara eftir á leiðinni í ballettinn sem er á fimmtudögum kl. 4 til 5.30. Fyrst þurfti að fara á kaffihúsið sem er uppi á Riverside Plaza og kaupa beyglu og vatn til að narta í, síðan átti að fara og taka leigubíl á horninu á 1st Avenue og 25th Street og passa að taka hann á réttu horni þannig að bíllinn gæti beygt beint inná 25th Street. Helst átti svo að borða naslið í bílnum en ég fékk Ingu Huld nú til að setjast niður úti í góða veðrinu þar sem mér fannst við hafa nægan tíma. Á meðan ballettinum stóð þá spókaði ég mig í Greenwich Village í sólinni ... við fengum okkur svo tilbúið lasagna í kvöldmatinn. Nú er Jóa aftur svo lengi í skólanum tvisvar í viku þannig að framundan hjá mér og Ingu Huld eru núðlusúpur og eitthvað annað álíka einfalt.
Um síðustu helgi drifum við okkur og keyptum stóla til að hafa á þakveröndinni okkar ... það er fínt að sóla sig þar, yfirleitt gott logn og mikill hitapollur ... nokkuð viss um að þar verður of heitt sumar vikurnar í sumar. Við erum búin að vera ansi dugleg að grilla og hefðum líklega gert það oftar nema að dagarnir enda stundum með rigningu einsog í gærkvöldi þegar það skall á með hellidembu einmitt þegar vinnudeginum lauk. Næstu tvo daga er einnig spáð rigningu og kulda, ekki nema 10-15 gráður ... ekki skemmtilegt það!
Það er skemmtilegt að fylgjast með stjórnmálaflækjunni heima ... greinilegt að ýmislegt baktjaldamakk er í gangi og er þetta svipað og að fylgjast með yfirtökutilrauninni á bankanum mínum þar sem einskis er svífst. Við horfðum á kosningarnar hér til miðnættis og var frábært að geta horft svo lengi á skikkanlegum tíma ... sáum því ríkisstjórnina ná meirihlutanum, missa hann eftir klukkutíma, ná honum aftur eftir 5 mínútur og þar frameftir götunum ... þegar við fórum að sofa var stjórnin í ágætis gír. Ég ætla síðan að halda öðrum stjórnmálapælingakommentum útaf fyrir mig en kannski á þessi frækna setning vel við "... if you can´t beat´em, join´em ..."
cheers
Engin ummæli:
Skrifa ummæli