sunnudagur, maí 13, 2007

Friend of a farmer

Við höfum oft labbað framhjá þessum stað sem er á Irving Place milli 18th og 19th á leiðinni niður á Union Square. Það er alltaf röð þarna um helgar í brunch þannig að það var alltaf planað að fara þangað. Loksins núna á mæðradaginn ákváðum við Inga Huld að bjóða mömmu út í brunch og varð þessi staður fyrir valinu. Við höfum einu sinni fengið okkur kvöldmat þarna og var brunch´inn í sama heimilislega dúrnum. Pönnukökurnar voru mjög góðar og er það nóg til að staðurinn slái í gegn hjá Ingu Huld.

Ef málið er að fara á þægilegan og heimilislegan stað þá er þessi málið ... þrjár stjörnur þessi.

... verði ykkur að góðu ...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gerir þú og þín famelía ekkert annað en að éta allan liðlangan daginn ;)

Nafnlaus sagði...

... voðalega lítið annað :) ... það er svo afskaplega gott að borða!