Keens Steakhouse
Við höfðum fyrir því að finna nýtt steikhús til að fara á og fundum Keens Steakhouse, á 36th milli 5th og 6th, eða Keens Chophouse einsog stendur utan á staðnum og leit afskaplega vel út. Staðurinn er frá 1885 og er frá þeim tíma þegar leikhúshverfið var á þessu svæði. Fram til 1901 var staðurinn einungis fyrir karlkynið þangað til bresk leikkona lögsótti þá fyrir að meina sér aðgöngu. Staðurinn býður uppá formlegan veitingastað þar sem panta þarf borð en hluti af barnum er einnig með sama matseðil og veitingastaðurinn og þar er borðum úthlutað á "first come, first serve basis". Loftið á staðnum er fyllt gömlum pípum og var það þannig áður fyrr að menn geymdu pípurnar sínar á stöðunum og þjónarnir sóttu síðan pípuna sem maður átti. Það er einkar skemmtileg steikhúsastemning á staðnum og maturinn er fyrsta flokks. Sjálfur fékk ég mér "Keens legendary mutton chops" sem var hálfur lambahryggur af 10 mánaða gömlu lambi ... mjög gott og held ég að ég hafi ekki prófað svona "gamalt" lamb áður, en kjötið af því var aðeins grófara heldur en af því sem ég hef prófað áður. Nautalundinni er hægt að mæla með og er fyrsta flokks! Ef kjöt fellur ekki í kramið þá eru nokkrir sjávarréttir í boði og fengum við okkur risarækjur líka sem voru mjög ljúffengar. Það var lítið pláss fyrir desert en þó var pantaður ís með heitri súkkulaðisósu og rjóma þ.e. hot fudge sundae og berjatart. Desertinn var ekki jafngóður og aðalrétturinn og er betra að fá sér bara kaffi og kannski einn viskí en það er hægt að velja úr meira en 200 single-malt tegundum. Mæli með staðnum ef einhver vill góða steik og gef honum fjóra og hálfa stjörnu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli